30.5.2008 | 08:02
Ekki mikið sofið hér á bæ
Ég viðurkenni það fyllilega að ég hvekktist rosalega eftir skjálftana árið 2000 og er bara skítrhædd við þessa skjálfta síðan. Enda fann ég það í nótt að hjartatutlan mín er nú enn svolítið krumpuð þrátt fyrir að vera nú búin að jafna sig af stærsta áfallinu síðan í gær. Það var nær stöðugur hrisstingur hér og þrátt fyrir að ég vissi vel að ég væri nokkuð vel örugg hér í fellihýsinu þá hrökk ég oft upp og tók langann tíma að festa svefn. Einnig var ég mikið í því að passa að litla skottinu mínu yrði ekki kalt þar sem hún er svo gjörn á að sparka af sér sængum og slíku.
Dagurinn í dag fer svo í tiltekt á íbúðinni og vonandi að ná að sofa eitthvað smá - svona þegar skottið leggur sig um miðjan daginn.
*GEYSP*
Stöðugir eftirskjálftar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 09:19
Mikið er ég feginn að heyra að allt sé í góðu hjá ykkur hugsaði svo mikið til ykkar og mömmu þinnar og pabba í gær.
Svakalegt að sjá myndirnar í síðustu fæslu en gott að þið eruð öll í lagi knús til ykkar og gangi þér vel í tiltektinni í dag....knús til ykkar og mömmu þinnar og pabb.
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 30.5.2008 kl. 09:20
Gangi þér vel elskan
Solla Guðjóns, 30.5.2008 kl. 09:27
SigrúnSveitó, 30.5.2008 kl. 12:08
Sunna Dóra Möller, 30.5.2008 kl. 12:23
Jenný Anna Baldursdóttir, 30.5.2008 kl. 17:23
Gott að þið slösuðust ekki!
Sporðdrekinn, 30.5.2008 kl. 18:01
Innlitskvitt og bestu kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 30.5.2008 kl. 22:44
Erna Björk Svavarsdóttir, 1.6.2008 kl. 10:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.