. - Hausmynd

.

Gleymdi hann ekki að vernda hana fyrir því hættulegasta???

Gleymdi þetta skrímsli ekki að vernda dóttur sína fyrir því hættulegasta??  Nefnilega sjálfum sér.

Það að maðurinn láti þetta út úr sér sýnir bara best hve ofboðslega siðblindur hann er.  

Þetta er maður sem er verra en nokkurt skrímsli - en því miður á hann marga sína líka í heiminum þó að þeir haldi nú ekki allir gíslum sínum í dýflyssum í bókstaflegri merkingu eins og þessi.

Mér finnst óhuggulegast að hugsa til fjölskyldunnar sem hlýtur að hafa verið gífurlega kúguð af manninum í öll þessi ár og hafi þau grunað nokkuð hafa þau örugglega ekki þorað að aðhafast neitt.  Vona bara að þau fái þá hjálp sem þau þurfa svo þau geti haft möguleika á að byggja sér upp sæmilega gott líf í framtíðinni. 

Mér finnst einnig óhuggulegt að hugsa til þess að slíkt geti viðgengis svo árum og áratugum skiptir án þess að neinn í samfélaginu gruni nokkuð eða bregðist við Crying


mbl.is Josef Fritzl faðir allra barnanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ég hef víða lesið að fólk telur móðurina hafa vitað um dótturina niðri. Hræðileg orð hafa verið látin falla enda hæpið að nokkur sem til þekkir lesi íslenskar bloggsíður. Ég hef ekki lagt orð í belg neinsstaðar en ætla að gera það hérna.

Það er öll fjölskyldan undir ógnarstjórn karlsins. Þeir sem þekkja til slíkra manna skilja það.

Takk fyrir að vera alltaf á vaktinni, þú ert gull

Ragnheiður , 29.4.2008 kl. 16:23

2 Smámynd: Dísa Dóra

Ragga - ég ætla mér ekki að dæma hvort hún vissi af þessu eða ekki enda er það ekki mitt að dæma.  Ég hins vegar skil vel þá ógnarstjórn sem hún hefur verið undir í öll þessi ár og get sett mig í hennar spor hvað óttann varðar.  Sá ótti er sterkur og hafi hana grunað nokkur hefur hann örugglega komið í veg fyrir að hún þyrði að bregðast við - eða jafnvel valdið því að hún afneitaði þessu grun sínum gjörsamlega til að lifa af.

Mér finnst sjálfri hræðilegt að lesa hve fólk dæmir þessa konu hart án þess að hugsa á nokkurn hátt úr í þau lífsskilyrði sem hún hefur nokkuð örugglega búið við.  Lögreglan segir manninn hafa beitt fjölskyldu sína ógnarstjórn - ég get vel lesið í hvað býr á bak við þau orð

Dísa Dóra, 29.4.2008 kl. 16:29

3 Smámynd: Solla Guðjóns

Mér varð illt að lesa þessa frétt.

Þvílík ófreskja megi hann kveljast í......nú er ég vond en mér er sama.hann á það skilið.

Knús svo á þig Dísan mín.

Solla Guðjóns, 29.4.2008 kl. 16:43

4 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Þetta er hræðilegt og maður skilur ekki hvernig hann gat þetta í svoan langan tíma án þess að nokkur skildi komast af því.

Svo er annað skrítið þetta er ekki eina svona málið sem hefur komið upp í þessu landi það finnst mér skrítið eru fleyrir hús sem geima svona leindarmál....

Kveðja til þín Heiður. 

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 29.4.2008 kl. 16:43

5 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Ótrúlegt mál og ótrúlegt að enginn skuli hafa kveikt á öllum þessum börnum á dyraþrepinu. Príkópíl er bara engill í samanburði við þennan.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 29.4.2008 kl. 17:49

6 Smámynd: Dísaskvísa

Þetta er svo hræðilegt mál- og ég vona svo sannarlega að móðirinn, konan og börnin nái að vinna í sínum málum. 

Bkv. Dísaskvísan

Dísaskvísa, 29.4.2008 kl. 20:28

7 identicon

Skelfilegt mál.Sennilega er móðirin fórnarlamb þessa viðbjóðs.Mæður sem eru brotnar niður á sál og jafnvel líkama eru ófærar oft á tíðum að verja sig og börn sín.Annars veit ég ekkert um mömmuna en þekki mæður sem hafa verið brotnar niður og oft er vanmáttur og gríðarlegt þunglyndi að gera útaf við þær.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 29.4.2008 kl. 21:52

8 Smámynd: Sporðdrekinn

Þetta er ógeðslegt mál. Konan hefur líklega verið kúguð hvort sem að hún vissi af þessu eða ekki. Persónulega finnst mér ansi hæpið að hún hafi ekki vitað af þessu. Það þurfa auðsjáanlega allir í fjölskyldunni mikla hjálp, það er vonandi að þau fái hana.

Sporðdrekinn, 30.4.2008 kl. 01:53

9 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Þetta er sorglegt...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 30.4.2008 kl. 15:17

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þetta er svo viðbjóðslegt að ég gat bara ekki talað um þetta fyrst.
Það er rétt hann er verri en nokkurt skrímsli, eins og við tölum um þau.
Nei hann á ekki skilið að lifa, en þó hann fengi þá refsingu sem við mundum vilja honum til handa mundi hann ekki skilja hana, svo siðlaus er hann.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 30.4.2008 kl. 17:17

11 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Sumt fólk á virkilega bágt og það er ábyggilega ástæða fyrir því að grey kallinn er svona fatlaður á sálinni. Sá sem verður fyrir kynferðislegu ofbeldi á unga aldri lendir oftast í því að verða gerandinn seinna meir.  Svo lendir þetta bara á fleirum og fleirum, kynslóð eftir kynslóð.

Gangið á Guðs vegum.

Gunni Palli kokkur. 

Gunnar Páll Gunnarsson, 30.4.2008 kl. 18:50

12 Smámynd: www.zordis.com

Það eru engin orð sem koma fram við svona ljotleika!  Guðsblessun óska ég þessari fjölskyldu með von um betra líf.

www.zordis.com, 30.4.2008 kl. 19:39

13 Smámynd: Erna Björk Svavarsdóttir

Afsakaðu blótið,,,,,,, djöf... and... VIÐBJÓÐUR. Það á að svipta menn lífi sem gera svona,,,,,,, ójbara, ég gæti hreinlega gubbað.

Erna Björk Svavarsdóttir, 1.5.2008 kl. 11:46

14 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

þetta er svo sorglegt, og hann er greinilega svo veikur, en að engin hafi vitað neitt eða grunað, stundum er best að loka augunum því sannleikurinn er og óyfirstíganlegut, það er ekki hægt að dæma aðstendurna, því það getur verið svo margt......

Bless í kvöldið !

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 1.5.2008 kl. 19:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband