. - Hausmynd

.

Lítil saga um vináttu

Fékk eftirfarandi sent núna áðan og finnst þetta alveg yndisleg saga.  Í lokin er maður hvattur til að senda þetta áfram til vina til að hvetja þá til að hugsa um það jákvæða.  Því set ég þetta hér inn kæru bloggvinir mínir til að þið vitið að mér þykir vænt um ykkur og ég þakka líka stuðninginn ykkar og skemmtileg skoðanaskipti InLove

Dag einn bað kennari nemendur sína að skrifa nöfn bekkjarfélaganna á blað.
Þeir áttu að skrifa eitt nafn í hverja línu og hafa auða línu á milli. Síðan
 bað hún nemendur sína að hugsa um það besta um hvern og einn og skrifa það
fyrir neðan nafnið. Þegar nemendur fóru úr tíma skiluðu þau blöðunum til
kennarans sem fór með þetta heim og bjó til lista yfir hvern nemanda og
safnaði saman því sem bekkjarfélagarnir höfðu skrifað.
Síðan fengu nemendurnir þetta í hendurnar daginn eftir. Þegar þeir lásu
þetta urðu þeir hissa á öllu því jákvæða sem bekkjarfélagarnir höfðu
skrifað. Þeir höfðu ekki gert sér grein fyrir að þeir skiptu svona miklu
máli. Kennarinn vissi ekki hve mikið nemendurnir ræddu þetta sín á milli eða
 við foreldrana en þetta hafði tilætlaðan árangur. Nemendurnir urðu
ánægðari með sig og aðra í bekknum, þeim leið betur.
 
Lífið hélt áfram.
 
Mörgum árum seinna lést einn nemendanna sem hét Magnús og kennarinn ákvað að
 vera viðstaddur jarðarförina. Einn vinur hins látna gekk til hennar og
spurði hvort hún hefði verið kennarinn hans og sagði að Magnús hefði talað
mikið um hana. Foreldrar hins látna komu einnig til hennar og vildu sýna
henni svolítið. Þau höfðu fundið samanbrotið blað í veski Magnúsar og var
það listinn með öllu jákvæðu atriðunum frá bekkjarfélögunum sem kennarinn
hafði fengið honum fyrir mörgum árum. "Þakka þér fyrir að gera þetta, því
eins og þú sérð þá skipti þetta hann miklu máli" sagði móðir Magnúsar.
Fyrrum bekkjarfélagar tóku undir það og sögðu að þessi listi hefði fylgt
þeim öllum gegnum lífið og skipt þá mjög miklu máli. Þetta var eitt af því
sem þeim þótti vænst um.
Þegar gamli kennarinn heyrði þetta settist hún niður og grét, bæði syrgði
hún Magnús og svo var hún hrærð yfir því að hafa snert nemendur sína með
þessu uppátæki.
 
Flest okkar hegðum við okkur þannig eins og að við höfum gleymt því að lífið
 endar einn góðan veðurdag. Enginn okkar veit hvenær sá dagur verður.
Þess vegna bið ég þig að segja við þá sem þér þykir vænt um hvað þeir séu
þér
mikilvægir og eigi sérstakan stað í hjarta þér. Gerðu það oft áður en það
verður of seint.
Eitt af því sem þú getur gert er að senda þetta áfram. Ef þú gerir það ekki
þá hefur þú misst af tækifæri til þess að gera eitthvað gott fyrir þá sem
eru þér mikilvægir.
Ef þú hefur fengið þetta bréf þá er það af því að einhverjum þykir vænt um
þig og að alla vega einni persónu finnst þú vera mikilvæg/ur.
 
Sendu þetta áfram. Sýndu að þér er annt um vini þína. Mundu að þú uppskerð
eins og þú sáir. Mundu að þú ert mikilvægur einhverjum.
Vona að dagurinn verði þér finn og sérstakur því þú skiptir miklu máli!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Það eru orð að sönnu að falleg ummæli og góð framkoma bræðir hjörtun og það veit sá sem allt veit að þegar við horfum björtum og jákvæðum augum á aðstæður þá verður lífið betra!

Fallegt innleg frá fallegri konu!

"við skiptum nefnilega máli, öll sem eitt" 

www.zordis.com, 11.3.2008 kl. 20:30

2 identicon

VÁ ég fékk tár í augun(ok skældi)..Yndislega falleg færsla

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 20:31

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 11.3.2008 kl. 20:40

4 Smámynd: Brynja skordal

Yndislegt

Brynja skordal, 11.3.2008 kl. 20:50

5 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Takk takk fyrir þessa yndislegu og fallegu sögu,ég fékk gæsahúð og hún snerti hjarta mitt.takk takk ,þessi saga er gullmoli.

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 11.3.2008 kl. 21:39

6 Smámynd: Margrét Hanna

Þetta var gert fyrir 2 árum hjá eldri minni og hún talar enn mikið um það og á eflaust eftir að muna það alla æfi.

Og á þessum nótum vil ég segja þér Dísa mín að mér þykir mjög vænt um þig og hugsa oft til þess tíma þegar við vorum að vinna saman og hvað það var gaman að kynnast frænku sinni á fullorðinsárum. Hvernig væri að við færum að hittast eitthvað!

Margrét Hanna, 12.3.2008 kl. 10:27

7 Smámynd: Hugarfluga

Æ, knús. Fallegt. 

Hugarfluga, 12.3.2008 kl. 19:18

8 Smámynd: Sporðdrekinn

  Falleg hugmynd.

Sporðdrekinn, 12.3.2008 kl. 19:28

9 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Fallegt saga.

PS. Má ég taka afrit af þessari sögu og setja hana á "sögu safnið" mitt? 

Gunnar Helgi Eysteinsson, 12.3.2008 kl. 20:19

10 Smámynd: Dísa Dóra

Svana - endilega bera þetta undir á næsta fundi

Margrét - mér þykir líka vænt um þig elsku frænka og já við verðum endilega að fara að hittast - orðið allt of langt síðan síðast

Gunnar - auðvitað máttu taka afrit af sögunni - ég á engan einkarétt á henni

Takk þið hin fyrir falleg orð

Dísa Dóra, 12.3.2008 kl. 22:21

11 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

þetta er fallegt, og svo satt. lifa hverja stund eins og hún sé hin hinsta.

Blessi þig inn í nóttina

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 13.3.2008 kl. 21:23

12 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er einmitt með þetta líka í dag, yndislegt.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.3.2008 kl. 22:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband