. - Hausmynd

.

Vantar þig vinnu núna??

Mæli með þessu Smile Frábærlega gefandi og skemmtilegt starf hjá yndislegri konu Heart

Viltu auðga líf mitt?


Ég er 38 ára kona með hreyfihömlun sem óskar eftir persónulegri aðstoðarmanneskju til starfa, helst sem fyrst. Í boði eru ýmis starfshlutföll og góð laun sem hækka með reynslu. Um er að ræða kvöld- og helgarvaktir.

Ég þarfnast aðstoðar við flestar athafnir daglegs lífs, svo sem við klæðnað, akstur í skóla og vinnu, tölvuvinnu og ýmis önnur verk.
   
Markmið
 aðstoðarmanneskju er að stuðla að tækifærum mínum til þátttöku í samfélaginu og að viðhalda og auka lífsgæði mín. Æskilegt er að hún hafi bílpróf því ég hef eigin bíl til umráða.
Jákvæðni, sveigjanleiki og virðing er lykillinn að farsæld í okkar samstarfi.

Fyrirspurnir, umsóknir og ferilskrár ásamt meðmælum berist á netfangið:   asdisjenna hjá simnet.is
Með fyrirfram þökk,
Ásdís Jenna Ástráðsdóttir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Gleðilega Páska og ljúfar notalegar kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 10.4.2009 kl. 17:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband