14.11.2008 | 08:49
FRÁ DEGI TIL DAGS
14.nóvember
Ef ein manneskja í fjölskyldu er óhamingjusöm, þá eru hinir í fjölskyldunni það líka. Þessvegna, mundi ég vilja að þið biðjið í einlægni fyrir og verndið hvert annað svo það séu engir sem eru óhamingjusamir eða ólánsamir, engir sem yfirgefa trú sína, og að hver manneskja muni verða hamingjusöm. Þess konar eru þau tengsl mannúðar milli meðlima sem fæða af sér sanna einingu. Kúgun eða valdbeiting sem á rætur í yfirvaldi er gagnslaust á tvísýnum stundum.
Þýtt úr For today & tomorrow, daily encouragement, Daisaku Ikeda
Alltaf svo glöð þessi elska
Svo gott að kúra í mömmu og pabba holu
Mamman er nú smá montin
Athugasemdir
Þetta er yndislegt líf-njótið þess
J+B
Jóhanna og Bjarni Ásgeirss. (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 11:34
Hæ hæ og til hamingju...
og mikið er hann nú yndislegur..
nú verð ég bara að fara að keyra aftur austur yfir ...:)
kv Edda
Edda (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 15:42
Yndislega ákafur svipurinn á stóru systur!!! Ofsalega myndarlegur litli bródir, hvad er betra í heiminum en litla fjölskyldan og ástin sem styrkir og stydur.
Góda helgi elsku Dísa Dóra mín og njóttu zín.
www.zordis.com, 14.11.2008 kl. 15:47
Þið eigið guðdómleg börn, elskan mín! Mikið er litli prinsinn mannalegur og vakandi! Ohhh ... ég hlakka svo til að fá mína elsku í faðminn.
Hugarfluga, 14.11.2008 kl. 21:15
Þú hefur sko enga smá ástæðu til þess að vera montin..... yndislega falleg börn.....njóttu lífsins....
Fanney Björg Karlsdóttir, 14.11.2008 kl. 23:43
Hey elskan mín.
Nú er vikan liðin og þá er ekkert því til fyrirstöðu að ég komi í heimsókn eftir helgi. Hlakka mikið til að koma og knúsa þig vinkona. Vonandi gengur allt saman vel.
Knús á þig og litlu fjölskylduna þína
Tína, 15.11.2008 kl. 09:24
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 15.11.2008 kl. 13:25
Vá þau eru æði !!!! með sama nebbalinginn
Solla Guðjóns, 16.11.2008 kl. 02:16
Ég finn lyktina af honum. Besta lykt í heimi af nýfæddum börnum.
Anna Einarsdóttir, 16.11.2008 kl. 11:31
Yndisleg systkin hér á ferð elsku frænka...ég var nún pínu heppin 2 ára frændi koma og lullaði hjá frænku og það er svo gott..
Kveðja til ykkar
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 16.11.2008 kl. 19:40
Christian Glitter by www.christianglitter.com
Sæl og blessuð
Takk fyrir fallegan pistil og að leyfa okkur að sjá fallegar myndir af börnunum þínum sem er mikil blessun. Hlakka til að lesa þegar þú telur upp blessanir í þínu lífi.
Vertu Guði falin
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 16.11.2008 kl. 21:44
Innilega til hamingju með drenginn elsku frænka Hann er yndislega fallegur og krúttlegt að sjá myndir af systkinunum.... ekki skaðar hvað hann fæddist á flottum degi
Eydís Hauksdóttir, 18.11.2008 kl. 21:24
Þetta voru falleg orð og FALLEG börn!! Hafið það gott fallega fjölskylda.
alva (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 23:21
yndislegar myndir og yndislegur teksti.
KærleiksLjós til þín og Íslands
steinaSteinunn Helga Sigurðardóttir, 19.11.2008 kl. 08:28
Þetta er hverju orði sannara. Til hamingju með litla soninn. Ferlega eru þau sæt saman systkynin.
Gunni Palli kokkur.
Gunnar Páll Gunnarsson, 19.11.2008 kl. 20:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.