11.11.2008 | 09:23
Það er sko engin kreppa á þessu heimili
Hvernig getur maður kvartað undan kreppu þegar maður á slíka STÓRVINNINGA!!
Nei það er sko langt í frá kreppa hér heldur aðeins foreldrar sem eru að springa úr stolti og hamingju yfir stóru vinningunum sínum. Stóra systir er nú heldur ekkert ósátt við nýjasta vinning heimilisins og er mikið að skoða hann og vera aaaaaaaaaaaaaaa.
Allir hressir hér á bæ og við mæðginin komin heim í ból. Komum í gær og ég verð nú bara að segja að ég er orðin það hress að það liggur við að ég gleymi að ég hafi farið í keisara. Vonandi verður framhaldið eins gott.
Takk fyrir yndislegar og góðar kveðjur
Set einnig inn leiðsögn dagsins hjá okkur Búddistum þar sem mér finnst hún einmitt segja það sem þarf. Við þurfum nefnilega að einbeita okkur að andlegum gæðum og hlutum í stað þeirra veraldlegu sem hafa verið ríkjandi í þjóðfélaginu okkar í of miklu mæli.
11.nóvember
Tuttugasta öldin var öld stríðs og friðar, öld stjórnmála og efnahagsmála. Dögun tuttugustu og fystu aldarinnar lofar hinsvegar að hún verði öld mannúðar og menningar, öld vísinda og trúarbragða. Ég vona að þið munið öll sækja fram á þessari dásamlegu nýju braut mannúðar af stolti og óttaleysi, eins og hugrakkir heimspekingar framkvæmda.
Athugasemdir
Jenný Anna Baldursdóttir, 11.11.2008 kl. 09:25
Hrönn Sigurðardóttir, 11.11.2008 kl. 09:32
Mikið ertu rík.Börnin þín eru svo falleg.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 10:34
*grenj* Hann er yndislegur!!! Og þau bæði auðvitað. Til hamingju enn og aftur, elskan mín.
Hugarfluga, 11.11.2008 kl. 13:33
Mikið var gaman að sjá ykkur aðeins í gær, drengurinn er alveg draumur, ekki datt mér í hug að þú hefðir farið í keisara, mér fannst þú svo hressileg. Hafið það gott og ég kíki bráðum. knús á línuna
Ásdís Sigurðardóttir, 11.11.2008 kl. 13:50
Yndislegur er prinsinn ykkar og stóra systir gangi ykkur vel knús Elskuleg
Brynja skordal, 11.11.2008 kl. 15:26
Jesú minn..enn og aftur til hamingju
Solla Guðjóns, 11.11.2008 kl. 16:49
Fallegust systkynin, ekki skal mig furda ad dúllan sé ahhhhhh vid bródir sinn. KNús í kotid og enn og aftur til lukku med drenginn!
www.zordis.com, 11.11.2008 kl. 18:39
innilega til hamingju, mikið falleg börn !!
Kærleiksknús frá Lejre
steinaSteinunn Helga Sigurðardóttir, 11.11.2008 kl. 18:51
Ofboðslega var nú ljúft að fá aðeins að halda á Guðlaug í gær en ég hlakka annars mikið til að knúsa skottuna mína aftur. Enda hlýnar mér ávallt um hjartarætur þegar ég horfi á hana brosandi út í eitt og út af engu, heldur brosir hún í einlægri gleði.
Knús á þig elsku vinkona mín.
P.s Hlakka líka til að knúsa þig aftur.
Tína, 11.11.2008 kl. 21:03
Innilega til hamingju með drenginn. Hver þarf að hafa áhyggjur af kreppu þegar svona falleg börn eru á heimilinu.
Þórdís Guðmundsdóttir, 12.11.2008 kl. 14:35
já, þið eruð rík hjónin!!
alva (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 14:45
Elsku kerlingin mín hvað þetta er skemmtilegt. Hjartanlega til hamingju. Alltaf sama kraftaverkið þegar nýtt líf verður til. Gangi ykkur sem allra best. Áframsendi slóðina á samstarfskonur mínar.
Bestu kv.
Guðrún
Álfhóll, 12.11.2008 kl. 15:40
Elsku Dísa frænka og fjölskylda.
Til hamingju með prinsinn oh hann er voðalega sætur eins og stóra systirin knús til ykkar allra frá okkur hér í Grindavík.
Heiður frænka
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 12.11.2008 kl. 16:36
Elsku Dísa Dóra mín til hamingju með vinningana þína, yndisleg börn.
Kærleikskveðjur til ykkar allra.
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.11.2008 kl. 17:37
Sæl og blessuð.
Innilega til hamingju með drenginn.
Megi almáttugur Guð blessa ykkur öll.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 13.11.2008 kl. 21:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.