28.8.2008 | 21:58
Grautarhaus í dag
Já þessi dagur (og nóttin reyndar líka) hefur einkennst af hausverk. Lítið gaman þegar maður er í þannig ástandi og bomm og reynir því að forðast verkjatöflur. Gafst nú reyndar upp á því og tók töflur en græddi ekkert þar sem þær virkuðu hvort sem er ekki. En hugga mig samt við að það sé þó eitt jákvætt við að vera með hausverk - maður veit þó að það er eitthvað þarna inni í það minnsta grautur sem mann verkjar í
Annars er besta verkjarmeðalið sem ég hef þessi yndislega skotta og brosin hennar
Krossa putta fyrir að grautarheilinn kólni nú aðeins fyrir morguninn
Athugasemdir
Ég get vel séð af hverju brosið læknar mömmuna
Ég vona að þú vaknir verkja laus!
Sporðdrekinn, 29.8.2008 kl. 03:07
rosalega sæt.
alva (IP-tala skráð) 29.8.2008 kl. 09:07
Sæl og blessuð.
Ég vona að höfuðpínan sé liðin. Falleg stelpa sem vermir hjartað þitt og heimilið.
Guð blessi ykkur mæðgur.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 29.8.2008 kl. 12:23
Litli gleðiboltinn þinn, hún er algjör draumur.
Ásdís Sigurðardóttir, 29.8.2008 kl. 18:34
I feel your pain! Og þá meina ég bókstaflega. Var með þvílíkan hausverk í gær, en eins og þú reyni ég að forðast að taka verkjalyf ... og þraukaði.
Æðisleg myndin af litlu skottunni þinni!!
Hugarfluga, 29.8.2008 kl. 20:46
Þvílík dúlla...... örugglega mikill fjörkálfur.....
Fanney Björg Karlsdóttir, 29.8.2008 kl. 21:57
Ekki furða að litla skottan þín virki sem besta verkjalyf. En ussss hvað ég vona innilega krúttan mín að þér liði nú betur í grautarhausnum í dag. Hrikalegt að vera með svona höfuðverk.
Ég óska þess að helgin verði þér ljúf og kvalalaus.
Tína, 30.8.2008 kl. 08:16
Falleg þessi litla dúlla.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 30.8.2008 kl. 13:16
Sunna Dóra Möller, 30.8.2008 kl. 14:45
Bergljót Hreinsdóttir, 30.8.2008 kl. 15:50
Falleg stúlkan þín,brosið er yndislegt en háraliturinn er dásamlegur.Ég hef borgað mikið af peningum í gegnum árin til að vera með lit lílan þessum
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 30.8.2008 kl. 19:23
Takk fyrir komuna og heiðurinn að hitta fjölskylduna þina!
Litla prinsessan er yndislega sterk
www.zordis.com, 30.8.2008 kl. 19:31
Innlitskvittknús knús og bestu kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 30.8.2008 kl. 21:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.