31.1.2009 | 17:36
Undirbúningur afmælis og nafnaveislu
Hér er húsmóðirin á fullu að baka og fleira fyrir afmælis og nafnaveislu sem haldin verður á morgun. Litla skottið er nefnilega að verða 2. ára þann 5. febrúar og höldum við upp á það á morgun um leið við við fögnum fallega nafninu á stubb okkar.
Eins og hefðarheimilum sæmir þá varð auðvitað að smakka afurðirnar aðeins
Yfirsmakkarinn að störfum
Já mamma mín það er nú bara allt í lagi að baka úr þessu - tja eða því sem erftir er allavega
Athugasemdir
Sæta skott :) Fátt þykir börnunum okkar...og reyndar mínum heittelskaða líka...betra en sleikja sleikjuna þegar ég er að baka :)
Gangi ykkur vel með veisluhöld á morgun.
Knús...
SigrúnSveitó, 31.1.2009 kl. 17:53
Jesús minn, dúllan.
Til hamingju.
Jenný Anna Baldursdóttir, 31.1.2009 kl. 18:15
Hrönn Sigurðardóttir, 31.1.2009 kl. 18:58
Hva... Kakan er ekkert verri þó það séu smá tannaför eða tunguför í kreminu......
Einar Indriðason, 31.1.2009 kl. 19:32
Æ snúllan - bara hamingjuóskir í morgundaginn. Þú lætur okkur svo fá nafnið á drengnum eftir nafnaveisluna
, 31.1.2009 kl. 20:47
Sæl og blessuð
Flott mynd, örugglega þótti stelpunni kremið gott á bragðið.
Til lukku með stelpuna og og til lukku með soninn sem mun fá nafn formlega á morgunn.
Vertu Guði falin
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 31.1.2009 kl. 23:01
Til hamingju með daginn í dag og þann fimmta að sjálfsögðu...
Fanney Björg Karlsdóttir, 1.2.2009 kl. 11:26
Sæta krúttið! Til hamingju með fallegu og skemmtilegu stúlkuna þína og ég treysti því að fá að heyra nafnið á kútnum í dag!! Knús og kossar til ykkar í tilefni dagsins.
www.zordis.com, 1.2.2009 kl. 12:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.