2.1.2009 | 03:51
Gleðilegt ár kæru vinir
Hér sit ég og vaki yfir litla demanti mínum um leið og ég hugsa um síðasta ár og áheit mitt fyrir þetta ár. Síðustu áheit mín hafa tengst því að koma börnunum mínum í heiminn og hafa lukkast heldur betur vel. Hét því síðustu 2 árin að þetta skildi verða besta ár lífs míns og þau urðu það svo sannarlega með tilkomu tveggja lítilla einstaklinga Hérna má til dæmis lesa síðustu áramótafærslu mína þar sem ég horfi til baka og hélt ég nú að árið 2008 gæti ekki toppað árið á undan - tja ef það toppaði ekki það ár þá get ég allvega sagt að það færði mér allavega álíka gleði og gæfu og árið á undan.
Það er vel þekkt hugtak innan búddismans að um leið og maður setur sér ásetninga sem eru til góðs fyrir líf manns má maður búast við öflum sem rísa upp til að reyna að hindra mann í að ná þessum ásetningum. Ég segi líka að þannig virkilega metur maður hlutina þegar maður hefur náð takmarkinu - maður hefur þurft að hafa aðeins fyrir þessu
Um miðjan desember ákvað ég að ásetningur minn fyrir þetta árið yrði sá að huga að heilsu minni fyrst og fremst og þannig auðvitað fjölskyldunnar í heild sinni. Jú ég var varla fyrr búin að setja mér þennan ásetning að fullu fyrr en að litla skottulottan mín kvefaðist og fékk svo háan hita um jólin og kom í ljós að hún er komin með lungnabólgu. Hún er nú öll að hressast þessi elska enda komin með tilheyrandi lyf. Einnig kom í ljós að hún er með mikinn vökva í eyrum og þarf því að fara í rör fljótlega þannig að vonandi verða hennar heilsumál fljótlega í góðum málum. Núna sit ég hins vegar og vaki yfir yngsta gullinu mínu þar sem hann er kominn með ansi ljótann hósta Fór með hann til vaktlæknis í gærdag og heyrðist sem betur fer ekkert í lungunum á honum en sennilega er þetta RS vírusinn á ferðinni og bara spurning hversu erfiður hann verður. Við tókum allavega þá ákvörðun hjónin að taka enga sénsa og vökum því yfir litla hóstagemlingnum okkar þar sem okkur líst ekkert á hóstann og öndunina í gutta. Það sem styður að þetta sé sennilega RS vírusinn er jú að litla leikskólaskottið er búin að vera með lungnabólgu eins og ég sagði sem og að við foreldrarnir erum með hálsbólgu líka. Núna er svo að krossa putta fyrir að litli kútur nái að hrissta þetta fljótt og vel af sér.
Það má því svo sannarlega segja að upp hafi risið erfiðleikar í heilsu okkar fjölskyldunnar um leið og þessi ásetningur minn varð til. En þetta er vonandi ekki dæmi um hvernig restin af árinu verður heldur einungis fjölskyldan að hrissta af sér óheilsuna á einu bretti
En talandi um síðastliðið ár þá var það svo sannarlega gott þrátt fyrir að vissulega bæri það einnig með sér sorg. Upphaf ársins var tíðindalítið og rann bara ljúflega hér á bæ. Fljótlega kom þó í ljós að lítill einstaklingur boðaði komu sína inn í þessa fjölskyldu og vorum við hjónin svo sannarlega sæl með það. Það jafnvel þrátt fyrir eðlilega meðgöngukvilla hjá mér í formi flökurleika og slíks haha - það var reyndar aldrei alvarlegt og ég bara ótrúlega hress.
29. maí gleymist sennilega seint hjá þessari fjölskyldu frekar en öðrum sunnlendingum þar sem atburðir þessa dags orsökuðu svo sannarlega góðan skjálfta hjá okkur. Við þökkuðum þó mikið fyrir að vera nýbúin að festa kaup á gömlu fellihýsi og varð fyrsta útilegan okkar í því heldur fyrr á ferðinni en áætlað hafði verið eða þá um kvöldið
Helgina eftir það var ég svo komin í sumarfrí og hófum við fríið okkar á að fara vestur og eyddum sjómannadeginum þar í góður yfirlæti hjá ættingjum. Júní var svo vel nýttur til ferðalaga með nýja húsið okkar í eftirdragi og fórum við meðal annars á norðurlandið og heillaðist ég til dæmis algjörlega að Ásbyrgi.
Einnig urðu tímamót hjá fjölskyldunni þar sem að húsbandið hélt upp á happatöluna 40 og litla skottið ákvað að gefa honum afmælisgjöf með því að fara loksins að ganga
Sumarið var í heild sinni mjög gott og litla fjölskyldan naut þess að vera saman í fríi og geta nýtt sér að ferðast um þetta fallega land okkar og verið úti í náttúrunni.
Í ágúst skrapp svo húsmóðirin aðeins til annars lands og fyllti auðvitað ferðatöskuna af varningi eins og sönnum íslendingi sæmir Verslaði þarna til dæmis allar jóla og afmælisgjafir fyrir næsta árið og var svo sannarlega fegin að því var lokið.
Næstu mánuðir liðu svo frekar tíðindalítið.
Í lok september kvaddi ég svo ömmu mína blessaða og sakna hennar mikið. Ég er þakklát fyrir öll þau ár sem ég fékk að hafa hana í lífi mínu og fyrir allt það sem hún kenndi mér.
Mér var einnig fyrirskipað að hætta að vinna þar sem blóðþrýstingur var farinn að hækka meira en gott þótti. Þarna hófst því nokkurra vikna bið eftir litla kút sem reyndi töluvert á kerlinguna þar sem ég hef nú aldrei átt gott með að hanga bara og gera ekki neitt. Sennilega eitthvað tengt óþolinmæði minni
Þann 7. nóvember kom svo litli prinsinn okkar í heiminn hraustur og flottur strákur sem auðvitað eignaðist stóran hlut í hjörtum foreldra sinna og stóru systur sem er svo yndislega glöð og stolt af litla bróður
Nóvember leið í sæluvímu þrátt fyrir vökunætur og slíkt sem tilheyrir þegar lítill einstaklingur kemur í heiminn.
Seinast í nóvember kvaddi svo afi húsbandsins þessa jarðvist og er hans sárt saknað.
Desember hefur svo liðið í rólegheitum hjá okkur og hátíðirnar hafa verið okkur rólegar og ljúfar.
Skotta tilbúin að fara út og fagna áramótunum
Sæl með sitt stjörnuljós en þorði nú samt ekki að halda á því sjálf
Núna er þó sælunni lokið með að hafa húsbandið heima þar sem hann fer að vinna aftur á morgun (eða það er vísst reyndar í dag ).
Ég er mjög bjartsýn á árið sem er að hefjast og ætla mér svo sannarlega að sjá til þess að ásetningur minn fyrir þetta árið takist (þrátt fyrir erfitt upphaf hans ) og einnig ætla ég mér að hafa þetta ár ár stórkostlegra sigra í mínu lífi.
Gleðilegt ár kæru vinir og vonandi verður þetta ár ykkur til gæfu
Athugasemdir
Gleðilegt nýtt ár Dísa Dóra
Hrönn Sigurðardóttir, 2.1.2009 kl. 08:58
Gleðilegt ár og knúsaðu þessa gullmola sem þú átt frá mér. Sko börnin, ekki karlinn þó hann sé líka krútt.
Jenný Anna Baldursdóttir, 2.1.2009 kl. 13:34
Skemmtilegur pistill elsku Dísa mín. Megi ykkur ganga allt í haginn. Sjáumst vonandi fljótlega
Ásdís Sigurðardóttir, 2.1.2009 kl. 13:36
Yndislegt að hafa svona fallega lífsskoðun eins og þú Dísa Dóra. Ég er sammála þér að nýja árið verði gott og eigi eftir að marka gleði á svo margan hátt!
Knús og kossar á fallegu fjölskylduna þína með von um gleði og frið á ári 2009.
www.zordis.com, 2.1.2009 kl. 13:52
Gleðilegt ár dúllan mín
Solla Guðjóns, 2.1.2009 kl. 20:55
Gleðilegt nýtt ár Dísa Dóra.. vonandi nær litli kútur sér fljótlega....
Fanney Björg Karlsdóttir, 2.1.2009 kl. 23:19
Gleðilegt ár og takk fyrir öll gölu árin Dísa mín og fjölskylda,mikið svaklega eru litlu frændsystkini mín flott knús til þeirra frá fræknu.
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 3.1.2009 kl. 15:22
undurljúft að vanda !
AlheimsLjós til þín og þinna
SteinaSteinunn Helga Sigurðardóttir, 4.1.2009 kl. 18:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.