19.10.2008 | 09:24
Ekki blóðþrýstingslækkandi.....
þegar maður rekst á svona frétt á moggavefnum nývöknuð og varla komin í gang. Besta vinkona mín býr þarna nefnilega og ég næ ekki á hana hvorki í heimasíma (sem ég bjóst ekki við) eða í gemsann. Hugsa nú að allt sé í lagi með hana og guttana hennar en maður vill nú samt helst ná að heyra í vinum sínum við svona tilfelli.
Hvað er þetta með vini mína og eld? Þetta er í þriðja sinn á um ári sem kviknar í hjá vinum mínum - vonandi síðasta sinn núna.
Viðbót: Er búin að ná í dömuna og allt í lagi með þau öll. Bara enn í sjokki. Hún vaknaði við reykskynjarana í nótt og var sú sem hringdi á slökkvilið. Fær svo að fara heim í dag og vonandi bara sem minnstar reykskemmdir hjá þeim. Vissi þó að sennilega væri stigagangurinn mikið reykskemmdur. En fyrir öllu að þau ásamt öðrum íbúum voru ok
Unnið að rannsókn á eldsupptökum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Enginn slasaður og allt fer vel.
Vinkona þín er vonandi í góðum höndum og vonandi ná tryggingarfélögin að hreinsa fljótt og vel svo allir geti haldið hátíðleg jól í ár!
www.zordis.com, 19.10.2008 kl. 09:31
Úff, skelfilegt.
Jenný Anna Baldursdóttir, 19.10.2008 kl. 10:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.