Þú veist hvenær þú ert að verða gamall þegar... Þú ert sofandi en allir halda að þú sért dáinn. Þú ert með partí og nágrannarnir verða þess ekki varir. Þú getur verið án kynlífs en ekki án gleraugna. Þú ferð oftar í bakinu en þú ferð út. Þú ert hættur að draga inn magann sama hver kemur inn. Þú kaupir áttavita í bílinn. Þú ert stoltur eigandi sláttuvélar. Besti vinnur þinn er með stúlku sem er helmingi yngri... og er ekki að brjóta nein lög. Handleggirnir á þér eru of litlir til að fletta blaðinu. Þú syngur með laginu í lyftunni. Þú vilt frekar fara í vinnu en að vera heima lasinn. Þér finnst gaman að hlusta á aðra tala um spítaladvöl. Þér finnst kaffi vera besti drykkur í heimi. Fólk hringir í þig kl. 9 og spyr "var ég að vekja þig "?" Þú svarar spurningu svona: "vegna þess að ég sagði það!" Endinn á bindinu hjá þér kemur hvergi nálægt buxnaröndinni. Þú ferð með málmleitartæki á ströndina. Þú ert í svörtum sokkum þegar þú ert í sandölum. Þú manst ekki eftir því hvenær þú lást á gólfinu til að horfa á sjónvarpið. Þú ert með meira hár í eyrunum en á höfðinu. Þú talar um "gott gras" en þú ert að tala um blettinn hjá nágrannanum. Þú verður vondur þegar talað er um ellilífeyrinn. Þú fékkst þér gervihnattadisk til að sjá veðurstöðina. Þú getur farið í keilu án þess að drekka. Greinilegt að ég er að eldast þar sem að sumt af þessu á alveg við mig |
Athugasemdir
Frekar fyndið, kannaðist við sumt, góða helga elskan mín og hafðu það gott
Ásdís Sigurðardóttir, 4.4.2008 kl. 17:11
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 17:35
hahahahahahahahahahahahahahahaha... ég hló svona mikið en komast að því að ég er að verða eldri
Gunnar Helgi Eysteinsson, 4.4.2008 kl. 19:33
Hahahaha ég kannast við sumt af þessu
Huld S. Ringsted, 4.4.2008 kl. 20:02
ERTU EKKI AÐ GRÍNAST!!! "vegna þess að ég sagði það!"
Ég nota þetta í tíma og ótíma! Er ég gömul?!?
Eina bindið sem að ég nota er dömubindi og það kemur hvergi nálægt buxnastrengnum mínum. Er ég þá ekki OK?
Sporðdrekinn, 5.4.2008 kl. 04:08
Guð hvað ég er heppin að ekkert af þessu er mér kunnugt.
Knús kveðjur Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.4.2008 kl. 09:17
Hef þessar athugasemdir í huga ef ég skyldi verða gömul einhverntímann
Kv. Erna
Erna Björk Svavarsdóttir, 5.4.2008 kl. 09:51
OMG ég er orðin gömul
Eru til hrukkubanar í sjónvarpsmarkaðnum?
KataKatA (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 12:19
Humm um hvað ertu að tala......
Held bara að ég sé nokkuð yngri en aldur segir til um.........Eða er ég bara í afneitun
Bros inn íi daginn
Solla Guðjóns, 5.4.2008 kl. 13:34
Sumt þekkir maður en annað á maður greinilega enn eftir að upplifa!
kveðja, Þórdís
Þórdís Guðmundsdóttir, 5.4.2008 kl. 17:56
Bara góðurknús og kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 5.4.2008 kl. 18:53
híhíhíhí Ásdís að vísu sumt af þessu rauða sem á við mig en ekki alveg allt
Dísa Dóra, 5.4.2008 kl. 20:55
Ha? 'eg er 55 ára og botna ekkert í hvað þú ert að tala um?? Að vísu er ég svo gæfusamur að vera seinþroska og barnalegur..
..svo ég á ekkert sameiginlegt með jafnöldrum mínum! Er það vont eða gott?
Óskar Arnórsson, 6.4.2008 kl. 20:14
Myndin af mér er tekin í fyrradag, vinnugallinn..
Óskar Arnórsson, 6.4.2008 kl. 20:15
Hehehe bara fyndið hló mikið.
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 7.4.2008 kl. 09:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.