23.3.2008 | 10:55
Frá degi til dags
Þar sem leiðsögn okkar Búddistanna er alveg frábær fyrir daginn í dag get ég ekki á mér setið að setja hana hér inn
23.mars
Við skulum öll beina augum okkar að því að lifa frábærum lífum sem við tileinkum alltaf sannleikanum og færast í átt að því markmiði við góða heilsu, barmafull af von. Við skulum lifa lífum okkar af hugrekki, án eftirsjár, sækja fram af þolinmæði, ákafa og gegnheilum anda vináttu og félagsskapar.
Hér á bæ þótti páskaeggið mjög gott í morgun
Athugasemdir
Þetta lítur ljómandi gott út.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 23.3.2008 kl. 11:47
Haha þetta er sko rétta aðferðin við að borða páskaeggin!
Gleðilega Páska Dísa mín
Huld S. Ringsted, 23.3.2008 kl. 12:30
Hahaha góð sú stutta með eggið
Bryndís R (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 12:30
Falleg leiðsögn. Færðu hana úr bók eða ?
Ég get ekki ímyndað mér að páskaegg dótturinnar dugi fram á kvöld !
Anna Einarsdóttir, 23.3.2008 kl. 12:40
Þó ég sé ekki Búddatrúar, þá er þetta leiðsögn sem ég get tekið heilshugar. Og ég sé að litla, fallega dóttir þín borðar sitt páskaegg alveg eins og ég borða mitt!! hahaha
Hugarfluga, 23.3.2008 kl. 13:13
Flott mynd.Gleðilega páska og góð lesningin
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 14:02
Anna - þetta eru leiðsagnir sem að heiðursforseti samtaka okkar færir okkur daglega okkur til hvatningar. Hér á landi fáum við þetta í enskri þýðingu í bókarformi og svo er ein elskan sem sér um að þýða og senda okkur á hverjum degi í tölvutæku formi
Hugarfluga - þessar leiðsagnir eru nefnilega þess eðlis að við getum nýtt okkur þær hverrar trúar sem við erum. Enda er nú oft sagt meðal okkar Búddista að Búddisminn sé ekki trú heldur lífið sjálft
Dísa Dóra, 23.3.2008 kl. 14:04
Yndisleg mynd.
Gleðilega páska.
Halla Rut , 23.3.2008 kl. 14:04
Yndisleg mynd og falleg leiðsögn. Hittumst vonandi fljótlega
Innilega gleðilega páska til þín og þinna.
Ásdís Sigurðardóttir, 23.3.2008 kl. 14:29
Krúttið litla, hún er með eina páskaeggið sem mér finnst flott þetta árið. Egg í höndum svona sakleysingja er bara æðislegt
Ragnheiður , 23.3.2008 kl. 18:27
Gleðilega Páska Dísa Dóra mín!
Óskar Arnórsson, 23.3.2008 kl. 20:14
Gleðilegt páskaegg :-)
Eydís Hauksdóttir, 24.3.2008 kl. 11:30
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 24.3.2008 kl. 14:42
Sæl og blessuð Dísa og gleðilega páska.
Gaman eftir svona mörg ár að við skulum hittast svona á blogg-heiminum.
Hver veit nema ég droppi við í kaffi þegar ég á leið fram hjá.
Sjáumst á blogginu,
Kv. Erna
Erna (IP-tala skráð) 25.3.2008 kl. 00:31
góð mynd! Algjör snilld!..hehe..
Óskar Arnórsson, 25.3.2008 kl. 05:45
Flott mynd af litlu frænku minni ...dúllan
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 25.3.2008 kl. 10:28
þetta er fallegt, og litla snúllan ekki stærri en eggið, eða hvað !
Blessi þig
SteinaSteinunn Helga Sigurðardóttir, 25.3.2008 kl. 13:44
Leiðsögn þessi er svo sönn og góð
Litla dúllurófan er algert yndi að fá sér AÐEINS
Solla Guðjóns, 25.3.2008 kl. 17:22
Myndin er þvílíkt æði og textinn er heillandi góður!
Væri gaman að móttaka textann því næring sálarinnar er jafnan nauðsyn!
www.zordis.com, 26.3.2008 kl. 23:22
Æðisleg mynd af litlu snúllunni með páskaeggið
Brynja skordal, 26.3.2008 kl. 23:56
Ég tók heilshugar við þessari fallegu leiðsögn og mikið er snúllan ykkar yndisleg :)
Thelma Ásdísardóttir, 27.3.2008 kl. 00:01
Ég veit ekki hvort er fallegra myndin af dótturinni eða leiðsögnin.
Nú spyr ég, er að kyrja eitthvað svipað og að hugleiða?
Sporðdrekinn, 27.3.2008 kl. 02:54
Zordis - ekkert mál að senda þér leiðsagnirnar ef þú vilt
Sporðdrekinn - það er svipað í hugum margra reyndar en í raun eru þetta samt nokkrar andstæður. Þú ert í báðum tilfellum að stilla líf þitt við alheimsöflin en með hugleiðlu ertu að leita inn á við. Með kyrjun að vísu horfir þú mikið í sjálfan þig og þína eiginleika en þú ert einmitt að opna líf þitt með kyrjuninni. Með því til dæmis að kyrja upphátt segjum við að við erum að opna fyrir orkuna okkar, erum að vinna að því að skapa okkar hamingju og annarra í leiðinni. Þegar við kyrjum stillum við líf okkar í hinn fullkomnar ritma alheimsins. Árangur þess er að við aukum líforku okkar, visku, samkennd og gæfu til að mæta öllum áskorunum sem framundan kunna að verða meðal annars. Við segjum að hljóð og bylgjur eru óendanlegar og því kyrjum við upphátt
Dísa Dóra, 27.3.2008 kl. 08:40
Takk. Ég á eftir að senda þér línu.
Sporðdrekinn, 28.3.2008 kl. 02:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.