5.9.2010 | 17:02
Drekaslóð
Ný samtök fyrir þolendur ofbeldis litu ljós föstudaginn 3. september 2010.
Samtökin heita Drekaslóð. Heimasíðu samtakanna má finna HÉRNA!
Hér má gerast meðlimur Drekaslóðar á fésbókinni.
Drekaslóð veitir þolendum alls kyns ofbeldis og aðstandendum þeirra aðstoð til að vinna með afleiðingar ofbeldisins í formi viðtala, námskeiða og hópastarfs.
Við bjóðum velkomna til okkar þolendur eineltis, kynferðislegs ofbeldis, þolendur ofbeldis í parasamböndum eða innan fjölskyldna, hvort sem ofbeldið er andlegt eða líkamlegt. Einnig þolendur ofbeldis framið af ókunnugum.
Við leggjum áherslu á að ná til karlmanna í auknum mæli, við viljum reyna grípa unga fólkið okkar eins fljótt og hægt er og einnig munum við bæta þjónustu til heyrnarskertra og geðfatlaðra.
Við bjóðum bæði upp á grunnþjónustu í formi einstaklingsviðtala og grunnhópa og einnig bjóðum við upp á fjölbreytta framhaldsvinnu sem oft er sérsniðin fyrir hvern hóp fyrir sig.
Við byggjum á hjálp til sjálfshjálpar.
Hér má sjá Drekana í Drekaslóð í opnunarteitinu á föstudaginn var
Athugasemdir
Fallegar konur! Flott framtak!
www.zordis.com, 23.9.2010 kl. 11:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.